Félagaréttarvöktun
Dagleg vöktun á félagarétti: dómar um hluthafa, ábyrgð stjórnenda, hlutafé og samruna, úrskurðir um fyrirtækjaskrá og ársreikningaskrá, þingmál og samráðsmál.
Hvað er vaktað
Hlutafélög og einkahlutafélög (lög nr. 2/1995 og 138/1994): réttindi hluthafa og hluthafafundir, skyldur og ábyrgð stjórnar og framkvæmdastjóra, hlutafé, arður, samruni, skipting og slit félaga. Önnur félagaform, ársreikningar og endurskoðun, skráning raunverulegra eigenda og fyrirtækjaskrá. Dómar, úrskurðir ráðuneytis um ákvarðanir fyrirtækjaskrár og ársreikningaskrár, þingmál, samráðsmál og mál Eftirlitsstofnunar EFTA gegn Íslandi á sviðinu.
Utan sviðsins
Gjaldþrotaréttur almennt (riftun og skipti), nema ábyrgð stjórnenda. Reglur um skráð félög á verðbréfamarkaði, sem eru í Fjármálaregluvöktun. Samrunaeftirlit, sem er í Samkeppnisvöktun. Skattlagning félaga, sem er í Skattvöktun.
Nýjustu mál
- Landsréttur – Einkahlutafélag, Kaupsamningur, Málsástæða, Ógildingu samnings hafnað, Samningsgerð, Samru (nr. 416/2025)
17. september 2026 · Dómar Landsréttar · Dómstólar (domstolar.is)
Mál nr. 416/2025. A, sem sat í óskiptu búi E, höfðaði mál gegn B og C ehf. og krafðist þess að ógiltur yrði kaupsamningur á milli B og föður hans E um einkahlutafélagið F ehf. og samruni þess við nánar tilgreind félög. Jafnframt krafðist A að B og C ehf. yrðu dæmd til greiðslu skaðabóta vegna missi leigutekna af faste…
- Lagafrumvarp: Ársreikningar (stærðarhlutföll, endurskoðunarmörk, skilafrestur o.fl.)
11. september 2026 · Lög og þingmál · Alþingi – þingmál
Lagafrumvarp á 158. löggjafarþingi, 77. mál: Ársreikningar (stærðarhlutföll, endurskoðunarmörk, skilafrestur o.fl.).
- Lagafrumvarp: Ársreikningar (stærðarmörk og endurskoðun ársreikninga)
11. september 2026 · Lög og þingmál · Alþingi – þingmál
Lagafrumvarp á 158. löggjafarþingi, 25. mál: Ársreikningar (stærðarmörk og endurskoðun ársreikninga).
- Úrskurður ráðuneytis – Kærð ákvörðun Fyrirtækjaskrár vegna synjunar skráningar breytinga á samþykktum félags
30. júlí 2026 · Úrskurðir ráðuneytis · Úrskurðir ráðuneyta (stjornarradid.is)
Hlutafélög, skráning samþykkta, tímafrestir, synjun skráningar
- Héraðsdómur Reykjavíkur – Einkahlutafélag, Hluthafafundur, Matsgerð, Minnihlutavernd, Sérfræðiábyrgð, Skaðabætur, Sö (nr. E-487/2024)
22. júní 2026 · Dómar héraðsdómstóla · Dómstólar (domstolar.is)
Mál nr. E-487/2024. Stefnendur áttu samtals 2,45% eignarhhlut í Löxum eignarhaldsfélagi ehf. Þeir stefndu annars vegar stærsta hluthafa félagsins og hins vegar endurskoðunarfyrirtæki og kröfðust skaðabóta úr hendi þeirra. Krafan var í grunninn byggð á því að stefnendur hefðu, sem minni hluthafar, verið hlunnfarnir við…
- Landsréttur – Einkahlutafélag, Endurgreiðsla, Laun, Málskostnaður, Skuldajöfnuður, Úttekt (nr. 266/2025)
21. maí 2026 · Dómar Landsréttar · Dómstólar (domstolar.is)
Mál nr. 266/2025. A ehf. höfðaði mál á hendur H og krafðist þess að honum yrði gert að greiða sér 8.123.597 krónur ásamt nánar tilgreindum vöxtum og dráttarvöxtum vegna óheimilla úttekta H á vörum og þjónustu hjá félaginu. Með hinum áfrýjaða dómi var fallist á nánar tilgreindar kröfur A ehf. sem H hafði viðurkennt. Á…
- Héraðsdómur Reykjavíkur – Einkahlutafélag, Forkaupsréttur, Geymslugreiðsla, Hlutaskrá, Kaupsamningur, Málamyndagerni (nr. E-6900/2024)
12. maí 2026 · Dómar héraðsdómstóla · Dómstólar (domstolar.is)
Mál nr. E-6900/2024. Stefnendur kröfðust viðurkenningar á forkaupsrétti sínum að hlutum í stefnda L ehf., sem stefndi H hafði selt stefndu G, Þ og N samkvæmt kaupsamningi. Í dóminum var talið að kaupsamningurinn hefði verið bindandi og virkjað forkaupsrétt stefnenda samkvæmt samþykktum félagsins. Ekki var fallist á að…
- Héraðsdómur Reykjaness – Aðild, Dráttarvextir, Sameignarfélag, Sönnun, Sönnunarbyrði, Túlkun samnings, Uppgjör, Upp (nr. E-2334/2024)
6. maí 2026 · Dómar héraðsdómstóla · Dómstólar (domstolar.is)
Mál nr. E-2334/2024. Stefnandi krafði sameignarfélag og sameigendur um greiðslu með óskiptri ábyrgð vegna uppgjörs við útgöngu hans úr félaginu, samkvæmt samkomulagi þar að lútandi en ágreiningur stóð um túlkun þess sem og hvort stefnanda hefði verið sagt upp störfum. Komst dómurinn að þeirri niðurstöðu að sameigendur…
- Héraðsdómur Reykjavíkur – Endurskoðandi, Skaðabótamál (nr. E-3737/2025)
24. apríl 2026 · Dómar héraðsdómstóla · Dómstólar (domstolar.is)
Mál nr. E-3737/2025. Ekki fallist á skaðabótábyrgð endurskoðanda. Ósannað taldist að endurskoðandi hefði veitt stefndendum ráðgjöf um skattaleg álitaefni við sölu hlutafjár.
- Hæstiréttur – Almennt félag, Stjórnarskrá, Félagafrelsi, Jafnræðisregla, Dýr, Miskabætur, Gagnsök (nr. 37/2025)
15. apríl 2026 · Dómar Hæstaréttar · Dómstólar (domstolar.is)
Mál nr. 37/2025. Ágreiningur aðila laut einkum að gildi úrskurðar siðanefndar H. Með honum var komist að þeirri niðurstöðu að A og R hefðu brotið gegn nánar tilteknum ákvæðum í lögum H, reglum félagsins um skráningu í ættbók og grundvallarreglum fyrir félagsmenn og þeim gert að sæta viðurlögum vegna þeirra brota. A og…
- Héraðsdómur Reykjaness – Einkahlutafélag, Framkvæmdastjóri, Hluthafafundur, Lögvarðir hagsmunir, Málshöfðunarfrestu (nr. E-1315/2025)
10. apríl 2026 · Dómar héraðsdómstóla · Dómstólar (domstolar.is)
Mál nr. E-1315/2025. Stefnandi krafðist þess að stefndi yrði dæmdur til að greiða sér 43.459.905 krónur ásamt nánar tilgreindum vöxtum og dráttarvöxtum. Þá krafðist stefnandi viðurkenningar á skaðabótaskyldu stefnda vegna tjóns sem stefnandi hefði orðið fyrir af völdum ólögmætrar og saknæmrar háttsemi stefnda, sem lei…
- Héraðsdómur Reykjavíkur – Dráttarvextir, Félag, Lánveiting, Sönnun, Þrotabú (nr. E-5408/2025)
30. mars 2026 · Dómar héraðsdómstóla · Dómstólar (domstolar.is)
Mál nr. E-5408/2025. Fallist var á kröfu þrotabús einkahlutafélags um að tvær greiðslur félagsins fyrir gjaldþrotið til stjórnarmanns félagsins teldust ólögmæt lánveiting sem honum bæri að endurgreiða með dráttarvöxtum.
- Landsréttur – Frávísunarkröfu hafnað, Gjaldþrotaskipti, Riftun, Samlagsaðild, Skaðabótaábyrgð, Stjórnarm (nr. 976/2024)
26. mars 2026 · Dómar Landsréttar · Dómstólar (domstolar.is)
Mál nr. 976/2024. Í málinu var deilt um riftunar- og endurgreiðslukröfu þb. W hf. á hendur E, vegna tilgreindrar greiðslu flugfélagsins W til E. Jafnframt var deilt um skaðabótakröfu þrotabúsins á hendur fyrrum forstjóra W, S, og stjórnarmönnunum L, H og D, sem byggðist á sömu greiðslu. Riftunarkrafa þrotabúsins byggð…
- Landsréttur – Frávísunarkröfu hafnað, Gjaldþrotaskipti, Riftun, Samlagsaðild, Skaðabótaábyrgð, Stjórnarm (nr. 954/2024)
26. mars 2026 · Dómar Landsréttar · Dómstólar (domstolar.is)
Mál nr. 954/2024. Í málinu var deilt um riftunar- og endurgreiðslukröfu þb. W hf. á hendur ALC, vegna tveggja nánar tilgreindra greiðslna flugfélagsins W til ALC. Jafnframt var deilt um skaðabótakröfu þrotabúsins á hendur fyrrum forstjóra W, S, og stjórnarmönnunum L, H og D, sem byggðist á sömu greiðslum. Riftunarkraf…
- Landsréttur – Gjaldþrotaskipti, Skaðabótaábyrgð, Stjórnarmenn, Þrotabú (nr. 971/2024)
26. mars 2026 · Dómar Landsréttar · Dómstólar (domstolar.is)
Mál nr. 971/2024. Í málinu var deilt um skaðabótakröfu þrotabúsins á hendur fyrrum forstjóra flugfélagsins W, S, og stjórnarmönnunum L, H og D, sem byggðist á tilgreindri greiðslu W til félagsins T, sem síðar varð SL. Með hinum áfrýjaða dómi hafði greiðslunni verið rift á grundvelli 141. gr. laga um gjaldþrotaskipti o…
- Landsréttur – Félag, Frávísunarúrskurður héraðsdóms felldur úr gildi, Kærumál, Lögvarðir hagsmunir, Samþ (nr. 900/2025)
5. mars 2026 · Dómar Landsréttar · Dómstólar (domstolar.is)
Mál nr. 900/2025. Málið varðaði kröfu B o.fl., félagsmanna í K, um ógildingu samnings K við E ehf. Í úrskurði Landsréttar var rakið að starfsemi K félli undir lög nr. 110/2021 um félög til almannaheilla, en í 17. gr. þeirra laga væri félagsmönnum tryggður tiltekinn réttur til málshöfðunar, þar á meðal um ákvarðanir se…
- Drög að reglugerð um álagningu dagsekta skv. lögum um skráningu raunverulegra eigenda, nr. 82/2019
13. febrúar 2026 · Samráðsgátt · Samráðsgátt (island.is)
Atvinnuvegaráðuneytið kynnir til umsagnar drög að reglugerð um álagningu dagsekta skv. lögum um skráningu raunverulegra eigenda, nr. 82/2019.
- ESA fer fram á að Ísland fari eftir dómum EFTA-dómstólsins um reglur um réttindi hluthafa
11. febrúar 2026 · Eftirlitsstofnun EFTA · Eftirlitsstofnun EFTA (eftasurv.int)
Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hefur í dag sent Íslandi tvö formleg áminningarbréf fyrir það að hafa ekki farið eftir tveimur dómum EFTA-dómstólsins sem varða reglur EES-samningsins um þátttöku hluthafa og auðkenningu hluthafa.Þann 22. október 2024 kvað EFTA-dómstóllinn upp dóma í málum E-4/24 og E-5/24, þar sem komist v…
- Drög að breytingum á lögum um ársreikninga í Samráðsgátt
9. febrúar 2026 · Lög og þingmál · Stjórnarráðið
Atvinnuvegaráðuneytið hefur lagt fram í Samráðsgátt frumvarpsdrög um breytingu á lögum um ársreikninga.
- Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um hlutafélög og lögum um einkahlutafélög (innleiðing)
5. febrúar 2026 · Samráðsgátt · Samráðsgátt (island.is)
Atvinnuvegaráðuneytið kynnir til samráðs drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um hlutafélög, nr. 2/1995, og lögum um einkahlutafélög, nr. 138/1994.
- Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um ársreikninga, nr. 3/2006 (stærðarhlutföll, endurskoðunarmörk, skilafrestir o.fl.)
2. febrúar 2026 · Samráðsgátt · Samráðsgátt (island.is)
Atvinnuvegaráðuneytið kynnir til samráðs drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um ársreikninga nr. 3/2006.
- Frumvarp til laga um breytingu á lögum um ársreikninga nr. 3/2006 (innleiðing EES reglna)
15. janúar 2026 · Samráðsgátt · Samráðsgátt (island.is)
Áform um lagasetningu frumvarp til laga um breytingu á lögum um ársreikninga nr. 3/2006 (stærðarhlutföll, endurskoðunarmörk, skilafrestur o.fl.).
Vikulegt fréttabréf
Fréttabréfasafn: Félagaréttarvöktun
Flokkar
- Dómar Hæstaréttar
- Dómar Landsréttar
- Dómar héraðsdómstóla
- Úrskurðir ráðuneytis
- Eftirlitsstofnun EFTA
- Lög og þingmál
- Samráðsgátt
- Reglugerðir og reglur
Heimildir
- Dómstólar (domstolar.is)
- Úrskurðir ráðuneyta (stjornarradid.is)
- Eftirlitsstofnun EFTA (eftasurv.int)
- Alþingi – þingmál
- Samráðsgátt (island.is)
- Stjórnarráðið
Önnur réttarsvið á Regluvaktaranum
- Skattvöktun – Dagleg vöktun á íslenskum skattarétti: úrskurðir yfirskattanefndar, dómar, lagafrumvörp, reglugerðir og samráðsmál um skatta og gjöld á einum stað.
- Fjármálaregluvöktun – Dagleg vöktun á fjármálaregluverki: fjármálaeftirlit Seðlabankans, verðbréfaviðskipti, peningaþvætti, lífeyrissjóðir, dómar, lagabreytingar og samráðsmál.
- Orku- og innviðavöktun – Dagleg vöktun á orku- og innviðamálum: Raforkueftirlitið, leyfi Umhverfis- og orkustofnunar, rammaáætlun, umhverfismat, úrskurðir ÚUA, dómar og þingmál.
- Samkeppnisvöktun – Dagleg vöktun á samkeppnisrétti: ákvarðanir og samrunamál Samkeppniseftirlitsins, úrskurðir áfrýjunarnefndar samkeppnismála, dómar, þingmál og samráðsmál.
- Innkaupa- og ríkisaðstoðarvöktun – Dagleg vöktun á opinberum innkaupum og ríkisaðstoð: úrskurðir kærunefndar útboðsmála, ákvarðanir ESA um Ísland, dómar íslenskra dómstóla og EFTA-dómstólsins.
- Persónuverndarvöktun – Dagleg vöktun á persónuverndarrétti: úrskurðir, ákvarðanir og álit Persónuverndar, leiðbeiningar EDPB á íslensku, dómar, þingmál og samráðsmál.
- Vinnuréttarvöktun – Dagleg vöktun á vinnurétti: dómar Félagsdóms, úrskurðir kærunefndar jafnréttismála, dómar um ráðningarsamninga og uppsagnir, þingmál og samráðsmál.
Regluvaktarinn – forsíða