Orku- og innviðavöktun
Dagleg vöktun á orku- og innviðamálum: Raforkueftirlitið, leyfi Umhverfis- og orkustofnunar, rammaáætlun, umhverfismat, úrskurðir ÚUA, dómar og þingmál.
Hvað er vaktað
Raforkumarkaður og ákvarðanir Raforkueftirlitsins, flutnings- og dreifikerfi raforku, virkjanir (vatnsafl, jarðhiti, vindorka), rammaáætlun, auðlindanýting og leyfi Umhverfis- og orkustofnunar, hitaveitur, vatnsveitur og fráveitur, og leyfisferli innviðaframkvæmda: umhverfismat, framkvæmdaleyfi, eignarnám og úrskurðir úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála.
Utan sviðsins
Almenn skipulags- og byggingarmál, fiskeldis- og iðnaðarstarfsleyfi, loftslagsreglur stórnotenda (ETS, CBAM), fjarskipta- og samgönguinnviðir.
Nýjustu mál
- Gunnar Tryggvason nýr formaður 6. áfanga rammaáætlunar
3. nóvember 2026 · Lög og þingmál · Stjórnarráðið
Gunnar Tryggvason hefur verið skipaður formaður verkefnisstjórnar 6. áfanga rammaáætlunar. Gunnar tekur við formennskunni af Svanfríði Jónasdóttur.
- Héraðsdómur Reykjavíkur – Aðilaskipti, Atvinnuréttindi, Auðlind, Dánarbú, EFTA dómstóllinn, Eignarréttur, Evrópska e (nr. E-3628/2024)
27. október 2026 · Dómar héraðsdómstóla · Dómstólar (domstolar.is)
Mál nr. E-3628/2024. Ekki var fallist á að nýtingarleyfi stefnda Benchmark Genetics Iceland hf. til töku grunnvatns í Vogavík í Sveitarfélaginu Vogum sem stefndi Umhverfis- og orkustofnun hafði gefið út væri andstætt lögum nr. 36/2011 um stjórn vatnamála, lögum nr. 57/1998 um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu,…
- Leyfi sameinuð og afgreidd á innan við 18 mánuðum
27. október 2026 · Lög og þingmál · Stjórnarráðið
Virkjunarleyfi, nýtingarleyfi, starfsleyfi og heimild til breytingar á vatnshloti verða gefin út sem eitt leyfi hjá Umhverfis- og orkustofnun á innan við 18 mánuðum frá því að fullnægjandi umsókn berst. Þetta er á meðal breytinga sem lagðar eru til í frumvarpi Jóhanns Páls Jóhannssonar umhverfis-, orku- og loftslagsrá…
- Landsréttur – Afréttur, Eignarréttur, Framsal, Samningur, Þjóðlenda, Vatnsréttindi (nr. 714/2025)
22. október 2026 · Dómar Landsréttar · Dómstólar (domstolar.is)
Mál nr. 714/2025. O ohf. krafðist þess að felldir yrðu úr gildi úrskurðir óbyggðanefndar um að félagið ætti ekki vatns- og virkjunarréttindi í Almenningi í Ísafirði og krafðist jafnframt viðurkenningar á beinum eignarrétti sínum að þeim réttindum. Byggði O ohf. á því að félagið hefði fengið réttindin framseld frá Reyk…
- Landsréttur – Afréttur, Eignarréttur, Þjóðlenda, Vatnsréttindi (nr. 713/2025)
22. október 2026 · Dómar Landsréttar · Dómstólar (domstolar.is)
Mál nr. 713/2025. S krafðist þess að felldur yrði úr gildi úrskurður óbyggðanefndar um að Almenningur í Skötufirði væri þjóðlenda og að viðurkenndur yrði beinn eignarréttur hans að nánar tilgreindu landsvæði vestan við vatnaskil Stóra-Kambs að Hundsá. Í dómi héraðsdóms var tekið fram að heimildir um afnot af umræddu l…
- Landsréttur – Afréttur, Eignarréttur, Framsal, Samningur, Þjóðlenda, Vatnsréttindi (nr. 715/2025)
22. október 2026 · Dómar Landsréttar · Dómstólar (domstolar.is)
Mál nr. 715/2025. O ohf. krafðist þess að felldur yrði úr gildi úrskurður óbyggðanefndar um að félagið ætti ekki vatns- og virkjunarréttindi í Hestfjarðaralmenningi og krafðist jafnframt viðurkenningar á beinum eignarrétti sínum að þeim réttindum. Byggði O ohf. á því að félagið hefði fengið réttindin framseld frá Ögur…
- Landsréttur – Eignarréttur, Fasteign, Landamerki, Þjóðlenda (nr. 711/2025)
22. október 2026 · Dómar Landsréttar · Dómstólar (domstolar.is)
Mál nr. 711/2025. H, eigandi jarðarinnar Kleifa í Skötufirði, höfðaði mál gegn Í og krafðist þess að felldur yrði úr gildi úrskurður óbyggðanefndar um þjóðlendu á nánar afmörkuðu svæði vestan Hundsár og austan Ögurbúðadalsár. Byggði H meðal annars kröfu sína á landamerkjalýsingu fyrir jörðina Borg, þinglýstri árið 190…
- Landsréttur – Eignarréttur, Landamerki, Landamerkjabréf, Þjóðlenda (nr. 717/2025)
22. október 2026 · Dómar Landsréttar · Dómstólar (domstolar.is)
Mál nr. 717/2025. G o.fl., eigendur að 62,5% hlut í jörðinni Borg í Skötufirði, kröfðust þess að felldur yrði úr gildi úrskurður óbyggðanefndar um að þjóðlenda sé í Stóra-Kambi og að viðurkenndur yrði beinn eignarréttur þeirra að nánar tilgreindu landsvæði vestan við Rjúkanda frá ármótum Rjúkanda og Hundsár suður um v…
- Landsréttur – Afréttur, Eignarréttur, Þjóðlenda, Vatnsréttindi (nr. 712/2025)
22. október 2026 · Dómar Landsréttar · Dómstólar (domstolar.is)
Mál nr. 712/2025. S krafðist þess að felldur yrði úr gildi úrskurður óbyggðanefndar um að Almenningur í Ísafirði sé þjóðlenda og að viðurkenndur yrði beinn eignarréttur hans að svæðinu. Í dómi héraðsdóms var tekið fram að ekki lægi fyrir landamerkjabréf fyrir Almenning í Ísafirði. Rakin var niðurstaða óbyggðanefndar u…
- Landsréttur – Afréttur, Eignarréttur, Framsal, Samningur, Þjóðlenda, Vatnsréttindi (nr. 718/2025)
22. október 2026 · Dómar Landsréttar · Dómstólar (domstolar.is)
Mál nr. 718/2025. O ohf. krafðist þess að felldur yrði úr gildi úrskurður óbyggðanefndar hvað það varðaði að félagið ætti ekki vatns- og virkjunarréttindi í Skötufjarðaralmenningi á nánar tilgreindu svæði. Þá krafðist O ohf. viðurkenningar á beinum eignarrétti sínum að því svæði. Byggði félagið kröfur sínar á því að s…
- Landsréttur – Eignarréttur, Forgangsáhrif, Hefð, Jarðhiti, Lagaheimild, Námuréttindi, Þinglýsing, Þinglý (nr. 567/2025)
22. október 2026 · Dómar Landsréttar · Dómstólar (domstolar.is)
Mál nr. 567/2025. Ágreiningur aðila laut að því hvort eignarhald á námum og námuréttindum sem og vatns- og jarðhitaréttindum umfram heimilisþarfir fylgdu jörðinni E, sem F festi kaup á árið 2006, eða hvort Í ætti þessi réttindi eins og lagt var til grundvallar í afsali við sölu jarðarinnar árið 1958. Með hinum áfrýjað…
- Landsréttur – Afréttur, Eignarréttur, Hefð, Þjóðlenda (nr. 716/2025)
22. október 2026 · Dómar Landsréttar · Dómstólar (domstolar.is)
Mál nr. 716/2025. S krafðist þess að felldur yrði úr gildi úrskurður óbyggðanefndar um að Almenningur í Hestfirði teldist þjóðlenda og að viðurkenndur yrði beinn eignarréttur hans að því svæði. Í dómi héraðsdóms var tekið fram að ekki væri til staðar landamerkjabréf fyrir Hestfjarðaralmenning. Þá var rakið að heimildi…
- ÚUA – UUA2610020 Þjórsárkvísl
21. október 2026 · Úrskurðir ÚUA · Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála (uua.is)
Árið 2026, miðvikudaginn 21. október, kom úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála saman til fundar í húsnæði nefndarinnar að Borgartúni 21, Reykjavík. Mætt voru Arnór Snæbjörnsson formaður, Unnþór Jónsson varaformaður og Karólína Finnbjörnsdóttir lögmaður. Mál nr. UUA2610020, kæra á ákvörðun sveitarstjórnar Skeiða-…
- Endurskoðuð drög að reglugerð um gagnsæi og háttsemi á heildsöluorkumarkaði raforku til kynningar í Samráðsgátt
16. október 2026 · Reglugerðir og reglur · Stjórnarráðið
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur sett drög að reglugerð um framkvæmd ákvæða raforkulaga um gagnsæi og háttsemi á heildsöluorkumarkaði raforku til kynningar að nýju í Samráðsgátt stjórnvalda.
- Endurskoðuð drög að reglugerð um framkvæmd 20. gr. a–20. gr. i raforkulaga nr. 65/2003
16. október 2026 · Samráðsgátt · Samráðsgátt (island.is)
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið kynnir að nýju til samráðs endurskoðuð drög að reglugerð um framkvæmd 20. gr. a–20. gr. i raforkulaga nr. 65/2003.
- Ný reglugerð um Loftslags- og orkusjóð og breyttar viðmiðunarfjárhæðir
14. október 2026 · Reglugerðir og reglur · Stjórnarráðið
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur undirritað reglugerð sem felur í sér skýrari umgjörð um starfsemi Loftslags- og orkusjóðs og skilvirkara verklag við auglýsingar og úthlutun styrkja úr samkeppnishluta sjóðsins.
- Tillaga verkefnisstjórnar 6. áfanga rammaáætlunar um flokkun sjö vindorkuverkefna til umsagnar
13. október 2026 · Leyfi og tilkynningar UOS · Umhverfis- og orkustofnun (uos.is)
Verkefnisstjórn 6. áfanga rammaáætlunar hefur flokkað sjö vindorkuverkefni og sett tillögu sína ásamt skýrslu og fylgisskjölum í 12 vikna samráð í samráðsgátt stjórnvalda. Tillagan er til umsagnar til 4. janúar 2027.
- Tillaga að flokkun sjö vindorkuverkefni: Skýrsla verkefnisstjórnar
12. október 2026 · Samráðsgátt · Samráðsgátt (island.is)
Verkefnisstjórn 6. áfanga rammaáætlunar hefur flokkað sjö vindorkuverkefni og sett tillögu sína Samráðsgátt. **Skýrsla verkefnisstjórnar og fylgiskjal 7 hafa verið uppfærð vegna lítilsháttar villna**
- Landsréttur – Framkvæmdaleyfi, Lögvarðir hagsmunir, Stjórnvaldsúrskurður (nr. 341/2025)
8. október 2026 · Dómar Landsréttar · Dómstólar (domstolar.is)
Mál nr. 341/2025. OR höfðaði mál gegn E og R og krafðist þess að ógiltur yrði úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála þar sem felld var úr gildi ákvörðun skipulagsfulltrúa R um að hafna kröfu E um að stöðva framkvæmdir við Árbæjarlón á grundvelli 53. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Með dómi héraðsdóms va…
- ÚUA – UUA2609022 Kringla II
6. október 2026 · Úrskurðir ÚUA · Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála (uua.is)
Árið 2026, þriðjudaginn 6. október, tók Arnór Snæbjörnsson, formaður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, með heimild í 3. mgr. 3. gr. laga nr. 130/2011, fyrir: Mál nr. UUA2609022, kæra á ákvörðun sveitarstjórnar Grímsnes- og grafningshrepps frá 1. maí 2002 um að samþykkja breytingu á deiliskipulagi frístundab…
- ÚUA – UUA2609022 Kringlan II
6. október 2026 · Úrskurðir ÚUA · Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála (uua.is)
Árið 2026, þriðjudaginn 6. október, tók Arnór Snæbjörnsson, formaður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, með heimild í 3. mgr. 3. gr. laga nr. 130/2011, fyrir: Mál nr. UUA2609022, kæra á ákvörðun sveitarstjórnar Grímsnes- og grafningshrepps frá 1. maí 2002 um að samþykkja breytingu á deiliskipulagi frístundab…
- Landsréttur – Eignarréttur, Frávísun frá héraðsdómi að hluta, Jarðhiti, Kröfugerð, Lögskýring, Sameign, (nr. 427/2025)
1. október 2026 · Dómar Landsréttar · Dómstólar (domstolar.is)
Mál nr. 427/2025. K og G ehf. voru eigendur að samtals 80% jarðarinnar Kross á Barðaströnd í Vesturbyggð. Barðastrandarhreppur, forveri sveitarfélagsins V, hafði keypt og fengið að gjöf fimm landspildur úr landi jarðarinnar og deildu aðilar um eignarrétt að jarðhita og grunnvatni innan merkja landspildnanna. Snerist á…
- ÚUA – UUA2607018 Miðgrund
25. september 2026 · Úrskurðir ÚUA · Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála (uua.is)
Fyrir var tekið mál nr. UUA2607018, kæra á ákvörðunum byggingarfulltrúa Akureyrarbæjar frá 8. janúar og 26. júní 2026, annars vegar um að samþykkja byggingaráform fyrir flugskýli á lóð Miðgrundar 9 og hins vegar um að synja kröfu um stöðvun framkvæmda á lóðinni. Í málinu er nú kveðinn upp svofelldur úrskurður: Með óda…
- ÚUA – UUA2609006 Þjórsárkvísl
24. september 2026 · Úrskurðir ÚUA · Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála (uua.is)
Fyrir var tekið mál nr. UUA2609006, kæra á ákvörðun Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar frá 28. ágúst 2026 um að veiting Austurkvíslar Þjórsárkvísla í fyrri farveg skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum. Í málinu er nú kveðinn upp til bráðabirgða svofelldur úrskurður um kröfu kæranda um frestun réttaráhrifa:…
- Héraðsdómur Reykjavíkur – Eignarréttur, Þjóðlenda (nr. E-3301/2025)
21. september 2026 · Dómar héraðsdómstóla · Dómstólar (domstolar.is)
Mál nr. E-3301/2025. Íslenska ríkið var sýknað af kröfu um að felldur yrði úr gildi hluti úrskurðar óbyggðanefndar í máli nr. 1/2023 er byggðist á ákvæði 7. mgr. 10. gr. laga nr. 58/1998, sbr. 4. gr. laga nr. 34/2020, og varðaði nyrsta hluta Grímólfsártungu. Telst landsvæði það sem málið varðaði vera þjóðlenda en afré…
- ÚUA – UUA2607014 Suðurnesjalína 2
17. september 2026 · Úrskurðir ÚUA · Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála (uua.is)
Fyrir var tekið mál nr. UUA2607014, kæra á þeirri afgreiðslu byggingarfulltrúa Sveitarfélagsins Voga að gefa út viðauka II frá 10. júlí 2026 við framkvæmdaleyfi fyrir Suðurnesjalínu 2, dags. 25. janúar 2024. Í málinu er nú kveðinn upp svofelldur úrskurður: Með bréfi til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dag…
- Þingsályktunartillaga: Millilandaflug um Hornafjarðarflugvöll
16. september 2026 · Lög og þingmál · Alþingi – þingmál
Þingsályktunartillaga á 158. löggjafarþingi, 65. mál: Millilandaflug um Hornafjarðarflugvöll.
- ÚUA – UUA2609005 Gauksstaðir
16. september 2026 · Úrskurðir ÚUA · Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála (uua.is)
Árið 2026, þriðjudaginn 15. september, tók Unnþór Jónsson, varaformaður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, með heimild í 3. mgr. 3. gr. laga nr. 130/2011, sbr. 1. mgr. 2. gr., fyrir: Mál nr. UUA2609005, kæra á ákvörðun bæjarstjórnar Suðurnesjabæjar frá 3. júní 2026 um að samþykkja deiliskipulag Gauksstaða (L…
- Þingsályktunartillaga: Orkuöryggi almennings
15. september 2026 · Lög og þingmál · Alþingi – þingmál
Þingsályktunartillaga á 158. löggjafarþingi, 92. mál: Orkuöryggi almennings.
- Útgáfa nýtingarleyfis á jarðhita í Reykholti fyrir Bláskógabyggð
15. september 2026 · Leyfi og tilkynningar UOS · Umhverfis- og orkustofnun (uos.is)
Umhverfis- og orkustofnun hefur veitt Bláskógabyggð leyfi til nýtingar á jarðhita í Reykholti í Bláskógabyggð, í samræmi við 6. gr. laga um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu, nr. 57/1998. Ákvörðun Umhverfis- og orkustofnunar er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála innan eins mánaðar frá bir…
- Dregið hefur úr fátækt barna en umtalsverður munur er á milli samfélagshópa
14. september 2026 · Lög og þingmál · Stjórnarráðið
Árið 2024 var hlutfall barna sem búa á heimilum undir lágtekjumörkum 12,6%, samanborið við 16,5% árið 2000. Það jafngildir því að um 10.500 börn hafi verið undir lágtekjumörkum árið 2024. Hlutfall barna sem búa við varanlega fátækt hefur einnig lækkað lítillega og var 5,1% árið 2024. Staðan á Íslandi er í meginatriðum…
- Þingsályktunartillaga: Uppbygging orkumannvirkja og átak til atvinnuuppbyggingar á Norðurlandi vestra
14. september 2026 · Lög og þingmál · Alþingi – þingmál
Þingsályktunartillaga á 158. löggjafarþingi, 47. mál: Uppbygging orkumannvirkja og átak til atvinnuuppbyggingar á Norðurlandi vestra.
- Þingsályktunartillaga: Leit að olíu og gasi
14. september 2026 · Lög og þingmál · Alþingi – þingmál
Þingsályktunartillaga á 158. löggjafarþingi, 66. mál: Leit að olíu og gasi.
- Útgáfa á rannsóknarleyfi fyrir Orkusöluna ehf. vegna fyrirhugaðrar vatnsaflsvirkjunar úr Ódáðavötnum
14. september 2026 · Leyfi og tilkynningar UOS · Umhverfis- og orkustofnun (uos.is)
Umhverfis- og orkustofnun hefur veitt Orkusölunni ehf. leyfi til rannsókna vegna fyrirhugaðrar vatnsaflsvirkjunar úr Ódáðavötnum í Múlaþingi, í samræmi við 4. gr. laga um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu, nr. 57/1998, sbr. 40. gr. raforkulaga nr. 65/2003. Afmörkun rannsóknarsvæðisins má finna í leyfinu hér að…
- Lagafrumvarp: Umhverfismat framkvæmda og áætlana og skipulagslög (umsagnarfrestur)
11. september 2026 · Lög og þingmál · Alþingi – þingmál
Lagafrumvarp á 158. löggjafarþingi, 38. mál: Umhverfismat framkvæmda og áætlana og skipulagslög (umsagnarfrestur).
- ÚUA – UUA2606003 Uppbygging gagnavers
11. september 2026 · Úrskurðir ÚUA · Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála (uua.is)
Fyrir var tekið mál nr. UUA2606003, kæra á ákvörðun Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar frá 2. júní 2026 um að uppbygging gagnavers við Valhallarbraut í Reykjanesbæ skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum. Í málinu er nú kveðinn upp svofelldur úrskurður: Með bréfi til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamál…
- Lagafrumvarp: Flýtiframkvæmd vatnsaflsvirkjana
10. september 2026 · Lög og þingmál · Alþingi – þingmál
Lagafrumvarp á 158. löggjafarþingi, 19. mál: Flýtiframkvæmd vatnsaflsvirkjana.
- Tillögur verkefnisstjórnar 6. áfanga rammaáætlunar til umsagnar
9. september 2026 · Leyfi og tilkynningar UOS · Umhverfis- og orkustofnun (uos.is)
Verkefnisstjórn 6. áfanga rammaáætlunar hefur sett tillögu um virkjanahugmyndir í verndarflokk og átta verndarsvæði í samráðsgátt stjórnvalda sbr. lög 48/2011. Tillögurnar eru til umsagnar til 23. nóvember 2026.
- Tillögur verkefnastjórnar 6. áfanga rammáætlunar til umsagnar
9. september 2026 · Leyfi og tilkynningar UOS · Umhverfis- og orkustofnun (uos.is)
Verkefnisstjórn 6. áfanga rammaáætlunar hefur sett tillögu um virkjanahugmyndir í verndarflokk og átta verndarsvæði í samráðsgátt stjórnvalda sbr. lög 48/2011. Tillögurnar eru til umsagnar til 23. nóvember 2026.
- Hleðslustöðvum á landsbyggðinni fjölgað um 21
4. september 2026 · Lög og þingmál · Stjórnarráðið
Loftslags- og orkusjóður hefur lokið úthlutun styrkja sem miða að því að þétta net hleðslustöðva fyrir rafbíla. Þannig verður tryggt að hvergi sé meira en 100 km á milli hleðslustöðva á þjóðvegum og að hraðhleðslustöð sé að finna í hverju einasta þéttbýli á landinu.
Vikulegt fréttabréf
Nýjast: Héraðsdómur staðfestir nýtingarleyfi í Vogavík og frumvarp boðar eitt sameinað leyfi (Vika 44, 2026). Fréttabréfasafn: Orku- og innviðavöktun
Flokkar
- Lög og þingmál
- Dómar Hæstaréttar
- Dómar Landsréttar
- Dómar héraðsdómstóla
- Úrskurðir ÚUA
- Leyfi og tilkynningar UOS
- Raforkueftirlitið
- Samráðsgátt
- Reglugerðir og reglur
Heimildir
- Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála (uua.is)
- Umhverfis- og orkustofnun (uos.is)
- Raforkueftirlitið (orkustofnun.is)
- Alþingi – þingmál
- Dómstólar (domstolar.is)
- Samráðsgátt (island.is)
- Stjórnarráðið
Önnur réttarsvið á Regluvaktaranum
- Skattvöktun – Dagleg vöktun á íslenskum skattarétti: úrskurðir yfirskattanefndar, dómar, lagafrumvörp, reglugerðir og samráðsmál um skatta og gjöld á einum stað.
- Fjármálaregluvöktun – Dagleg vöktun á fjármálaregluverki: fjármálaeftirlit Seðlabankans, verðbréfaviðskipti, peningaþvætti, lífeyrissjóðir, dómar, lagabreytingar og samráðsmál.
- Samkeppnisvöktun – Dagleg vöktun á samkeppnisrétti: ákvarðanir og samrunamál Samkeppniseftirlitsins, úrskurðir áfrýjunarnefndar samkeppnismála, dómar, þingmál og samráðsmál.
- Innkaupa- og ríkisaðstoðarvöktun – Dagleg vöktun á opinberum innkaupum og ríkisaðstoð: úrskurðir kærunefndar útboðsmála, ákvarðanir ESA um Ísland, dómar íslenskra dómstóla og EFTA-dómstólsins.
- Félagaréttarvöktun – Dagleg vöktun á félagarétti: dómar um hluthafa, ábyrgð stjórnenda, hlutafé og samruna, úrskurðir um fyrirtækjaskrá og ársreikningaskrá, þingmál og samráðsmál.
- Persónuverndarvöktun – Dagleg vöktun á persónuverndarrétti: úrskurðir, ákvarðanir og álit Persónuverndar, leiðbeiningar EDPB á íslensku, dómar, þingmál og samráðsmál.
- Vinnuréttarvöktun – Dagleg vöktun á vinnurétti: dómar Félagsdóms, úrskurðir kærunefndar jafnréttismála, dómar um ráðningarsamninga og uppsagnir, þingmál og samráðsmál.
Regluvaktarinn – forsíða