Persónuverndarvöktun
Dagleg vöktun á persónuverndarrétti: úrskurðir, ákvarðanir og álit Persónuverndar, leiðbeiningar EDPB á íslensku, dómar, þingmál og samráðsmál.
Hvað er vaktað
Vernd persónuupplýsinga samkvæmt lögum nr. 90/2018 og almennu persónuverndarreglugerðinni (GDPR): úrskurðir, ákvarðanir og álit Persónuverndar, fréttir og leiðbeiningar hennar, þar á meðal frásagnir á íslensku af leiðbeiningum Evrópska persónuverndarráðsins (EDPB). Dómar um vinnslu persónuupplýsinga og friðhelgi einkalífs, þingmál, samráðsmál og EES-mál sem varða Ísland.
Utan sviðsins
Refsimál um brot gegn friðhelgi einkalífs og meiðyrðamál. Upplýsingaréttur almennings og úrskurðarnefnd um upplýsingamál. Netöryggi og fjarskiptaréttur. Sektarákvarðanir erlendra persónuverndarstofnana.
Nýjustu mál
- Persónuvernd – Landsréttur staðfestir ákvörðun Persónuverndar vegna öryggisveikleika í Heilsuveru en lækkar sekt
23. október 2026 · Fréttir og leiðbeiningar Persónuverndar · Persónuvernd (island.is)
Landsréttur hefur staðfest þá niðurstöðu Persónuverndar að embætti landlæknis hafi ekki tryggt öryggi persónuupplýsinga á upplýsingavefnum Heilsuveru með fullnægjandi hætti og að brotin hafi gefið tilefni til stjórnvaldssektar. Rétturinn lækkaði hins vegar sektina úr 12 milljónum króna í 4,5 milljónir króna.
- Landsréttur – Meðalhóf, Persónuupplýsingar, Persónuvernd, Stjórnsýsla, Stjórnvaldsákvörðun, Stjórnvaldss (nr. 514/2025)
22. október 2026 · Dómar Landsréttar · Dómstólar (domstolar.is)
Mál nr. 514/2025. E krafðist þess að ógilt yrði ákvörðun P þar sem komist var að þeirri niðurstöðu að E hefði ekki með fullnægjandi hætti tryggt öryggi persónuupplýsinga í skilaboðahluta vefsvæðisins H, sem og við veitingu aðgangs í mæðraverndarhluta sama vefsvæðis að gögnum í sjúkraskrárkerfum tiltekinna tveggja heil…
- Héraðsdómur Reykjavíkur – Málsástæða, Málshraði, Meðalhóf, Miski, Persónuupplýsingar, Persónuvernd, Skjöl, Sönnun, S (nr. E-6853/2023)
22. október 2026 · Dómar héraðsdómstóla · Dómstólar (domstolar.is)
Mál nr. E-6853/2023. Stefndi í málinu var sýknaður af miskabótakröfu stefnanda, sem byggði meðal annars á því að stefndi hefði, með saknæmum og ólögmætum hætti, valdið stefnanda ófjárhagslegu tjóni (miska) vegna brota gegn lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og reglugerð Evrópuþingsins og Ev…
- Persónuvernd – Evrópska persónuverndarráðið vekur athygli á áhættu vegna snjallgleraugna
14. október 2026 · Fréttir og leiðbeiningar Persónuverndar · Persónuvernd (island.is)
Evrópska persónuverndarráðið (EDPB) hefur gefið út yfirlýsingu um þær áskoranir sem notkun snjallgleraugna hafa í för með sér fyrir persónuvernd.
- Persónuvernd – Úrskurður: Óheimilar uppflettingar starfsmanns Landspítala í sjúkraskrá
5. október 2026 · Úrskurðir Persónuverndar · Persónuvernd (island.is)
Persónuvernd hefur úrskurðað í máli þar sem kvartað var yfir uppflettingum starfsmanns Landspítala í sjúkraskrá kvartanda. Fyrir lá niðurstaða eftirlitsnefndar um rafræna sjúkraskrá Landspítala um að starfsmaðurinn hefði við rannsókn málsins hjá nefndinni ekki sýnt fram á að hafa haft lögmætt erindi í sjúkraskrá kvart…
- Persónuvernd – Þrír fundir um persónuvernd í tækni- og hugverkaiðnaði á næstu mánuðum
5. október 2026 · Fréttir og leiðbeiningar Persónuverndar · Persónuvernd (island.is)
Samtök iðnaðarins og Persónuvernd undirbúa þrjá fundi fyrir fyrirtæki í tækni- og hugverkaiðnaði á næstu mánuðum. Markmiðið er að efla samtal um persónuvernd, nýsköpun og góða starfshætti við þróun og notkun nýrra tæknilausna.
- Landsréttur – Faðerni, Friðhelgi einkalífs, Kærumál, Mannerfðafræðileg rannsókn (nr. 394/2026)
24. september 2026 · Dómar Landsréttar · Dómstólar (domstolar.is)
Mál nr. 394/2026. A höfðaði mál gegn B og krafðist þess að fram færi mannerfðafræðileg rannsókn á lífsýni úr B, syni C, í þeim tilgangi að viðurkennt yrði með dómi að C, sem er látinn, væri faðir A. Fyrir Landsrétt kom vitnið H, móðursystir A, og staðfesti yfirlýsingu sína sem lögð hafði verið fyrir Landsrétt. Í yfirl…
- Persónuvernd – Ákvörðun: Frumkvæðisathugun á vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við rafræna vöktun á bílastæðum Isavia innanlandsflugvalla ehf.
22. september 2026 · Ákvarðanir Persónuverndar · Persónuvernd (island.is)
Persónuvernd hefur tekið ákvörðun vegna frumkvæðisathugunar á vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við rafræna vöktun á bílastæðum flugvalla Isavia innanlandsflugvalla ehf. (Reykjavíkurflugvöllur, Akureyrarflugvöllur, Egilsstaðaflugvöllur, Ísafjarðarflugvöllur og Sauðárkróksflugvöllur). Beindist athugunin að því hvort…
- Persónuvernd – Nýjar leiðbeiningar EDPB um sektir og samspil DSA og GDPR
21. september 2026 · Fréttir og leiðbeiningar Persónuverndar · Persónuvernd (island.is)
Evrópska persónuverndarráðið (EDPB) hefur samþykkt nýjar leiðbeiningar um beitingu stjórnsýslusekta samkvæmt almennu persónuverndarreglugerðinni (GDPR).
- Persónuvernd – Stafrænt fullveldi og upplýsingaöryggi – Persónuvernd á Lagadeginum
21. september 2026 · Fréttir og leiðbeiningar Persónuverndar · Persónuvernd (island.is)
Helga Þórisdóttir, forstjóri Persónuverndar, flutti erindi á aðalmálstofu Lagadagsins, sem var haldinn þann 18. september síðastliðinn.
- Persónuvernd – Álit: Álit á fyrirhugaðri öflun Reykjavíkurborgar á fjárhagsupplýsingum notenda NPA
17. september 2026 · Álit Persónuverndar · Persónuvernd (island.is)
Persónuvernd hefur gefið út álit á fyrirhugaðri upplýsingaöflun Reykjavíkurborgar frá NPA-miðstöðinni. Nánar tiltekið óskaði NPA-miðstöðin eftir áliti á fyrirhugaðri öflun Reykjavíkurborgar á bankayfirlitum og kvittunum frá félagsfólki miðstöðvarinnar vegna útlagðs kostnaðar þess af þjónustu aðstoðarfólks síns. Tilgan…
- Persónuvernd – Úrskurður: Miðlun Bændasamtaka Íslands á persónuupplýsingum úr WorldFeng og áframhaldandi vinnsla Horseday ehf.
16. september 2026 · Úrskurðir Persónuverndar · Persónuvernd (island.is)
Persónuvernd hefur úrskurðað í máli þar sem kvartað var yfir annars vegar miðlun Bændasamtaka Íslands á persónuupplýsingum kvartanda úr gagnagrunninum WorldFeng til Horseday ehf. og hins vegar áframhaldandi vinnslu sömu upplýsinga af hálfu félagsins í smáforritinu Horseday. WorldFengur er annars vegar upprunaættbók ís…
- Persónuvernd – Vegna þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst 2026
11. september 2026 · Fréttir og leiðbeiningar Persónuverndar · Persónuvernd (island.is)
Persónuvernd hafa borist samtals 54 ábendingar og kvartanir vegna óumbeðinna fjarskipta og vinnslu persónuupplýsinga í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst 2026, um hvort Ísland skyldi hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið.
- Persónuvernd – Ábending vegna gagnaleka af Booking.com
27. ágúst 2026 · Fréttir og leiðbeiningar Persónuverndar · Persónuvernd (island.is)
Persónuvernd hafa borist ábendingar vegna tilrauna til svika í kjölfar gagnaleka af vefsíðunni Booking.com.
- Persónuvernd – Vegna þjóðaratkvæðagreiðslu: Áminning til stjórnmálahreyfinga og hagsmunaaðila
27. ágúst 2026 · Fréttir og leiðbeiningar Persónuverndar · Persónuvernd (island.is)
Vegna ábendinga sem Persónuvernd hafa borist um óumbeðin fjarskipti vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar næstkomandi laugardag, þar á meðal um símhringingar, SMS og tölvupósta til einstaklinga, telur stofnunin rétt að vekja athygli stjórnmálahreyfinga, hagsmunasamtaka og annarra á eftirfarandi:
- Persónuvernd – Verum upplýst og gagnrýnin í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar
24. ágúst 2026 · Fréttir og leiðbeiningar Persónuverndar · Persónuvernd (island.is)
Persónuvernd, Fjölmiðlanefnd, Fjarskiptastofa, Landskjörstjórn, Ríkislögreglustjóri og CERT-IS hvetja almenning til að vera á varðbergi gagnvart upplýsingum og efni sem tengist þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst.
- Persónuvernd – EDPB kallar eftir skýrri lagaheimild fyrir miðlun upplýsinga milli eftirlitsaðila
17. júlí 2026 · Fréttir og leiðbeiningar Persónuverndar · Persónuvernd (island.is)
Evrópska persónuverndarráðið (EDPB) hefur hvatt framkvæmdastjórn Evrópusambandsins til að leggja til skýra lagaheimild sem geri eftirlitsaðilum á ólíkum sviðum kleift að miðla sín á milli upplýsingum, þar á meðal trúnaðarupplýsingum, vegna eftirlits og framkvæmdar löggjafar.
- Persónuvernd – EDPB skýrir reglur um afmáningu persónuauðkenna og vefsöfnun
8. júlí 2026 · Fréttir og leiðbeiningar Persónuverndar · Persónuvernd (island.is)
Evrópska persónuverndarráðið, EDPB, hefur samþykkt nýjar leiðbeiningar um afmáningu persónuauðkenna (e. anonymisation) og vefsöfnun (e. web scraping) við þróun gervigreindarlausna.
- Persónuvernd – Úrskurður: Ætluð netvöktun starfsmanns af hálfu BL ehf.
1. júlí 2026 · Úrskurðir Persónuverndar · Persónuvernd (island.is)
Persónuvernd hefur úrskurðað um að ósannað hafi verið að BL ehf. hafi viðhaft rafræna vöktun með kvartanda, nánar tiltekið netvöktun, á meðan hún starfaði hjá félaginu. Aðilar deildu m.a. um hvaða skilning bæri að leggja í framlögð gögn málsins sem báru um stillingar á skráasvæðum kvartanda á meðan hún starfaði hjá BL…
- Drög að reglugerð heilbrigðisráðherra um fjarheilbrigðisþjónustu til umsagnar
24. júní 2026 · Reglugerðir og reglur · Stjórnarráðið
Fjarheilbrigðisþjónusta er orðin fastur hluti af íslensku heilbrigðiskerfi og fer ört vaxandi. Núgildandi umgjörð byggir á fyrirmælum landlæknis frá árinu 2019 sem endurspegla ekki lengur það tækni- og öryggisumhverfi sem þjónustan starfar í. Nýju reglugerðinni er ætlað að leysa þau fyrirmæli af hólmi og tryggja að ör…
- Persónuvernd – Úrskurður: Vinnsla Borgarholtsskóla á persónuupplýsingum í tengslum við ábendingarhnapp á vefsíðu skólans
24. júní 2026 · Úrskurðir Persónuverndar · Persónuvernd (island.is)
Persónuvernd hefur úrskurðað um að vinnsla persónuupplýsinga af hálfu Borgarholtsskóla hafi ekki verið í samræmi við meginreglur persónuverndarlöggjafarinnar og ákvæði hennar um vinnsluheimild. Í málinu var deilt um heimild Borgarholtsskóla til þess að taka við nafnlausri ábendingu sem beindist að kvartanda, í gegnum…
- Landsréttur – Miskabætur, Opinberir starfsmaður, Persónuvernd (nr. 398/2025)
18. júní 2026 · Dómar Landsréttar · Dómstólar (domstolar.is)
Mál nr. 398/2025. A var áminntur vegna hegðunar gagnvart undirmanni sínum og samhliða því færður til í starfi. A krafðist ógildingar ákvörðunar um breytingu á störfum og verksviði og miskabóta vegna þeirrar ákvörðunar. Í málinu var um það deilt hvort að ákvörðunin um breytingar á störfum og verksviði A hafi verið ólög…
- Persónuvernd – Fundur EDPB með framkvæmdastjóra hjá ESB
12. júní 2026 · Fréttir og leiðbeiningar Persónuverndar · Persónuvernd (island.is)
Á dögunum fundaði Evrópska persónuverndarráðið (EDPB) með Michael McGrath, framkvæmdastjóra ESB á sviði lýðræðis, dómsmála, réttarríkis og neytendaverndar.
- Persónuvernd – Persónuvernd hefur lokið úttektum á vinnslu persónuupplýsinga hjá ákæruvaldinu
4. júní 2026 · Fréttir og leiðbeiningar Persónuverndar · Persónuvernd (island.is)
Persónuvernd hefur lokið úttektum á vinnslu persónuupplýsinga hjá þeim sem fara með ákæruvald hér á landi, þ.e. ríkissaksóknara, héraðssaksóknara og lögreglustjórum.
- Persónuvernd – Stokkhólmsyfirlýsingin undirrituð
26. maí 2026 · Fréttir og leiðbeiningar Persónuverndar · Persónuvernd (island.is)
Þann 21.–22. maí 2026 komu persónuverndaryfirvöld frá Danmörku, Færeyjum, Finnlandi, Íslandi, Noregi, Álandseyjum og Svíþjóð saman í Stokkhólmi á árlegum norrænum fundi sínum.
- Landsréttur – Dráttarvextir, EES-samningurinn, Miskabætur, Persónuupplýsingar, Persónuvernd, Ríkisstarfs (nr. 312/2025)
13. maí 2026 · Dómar Landsréttar · Dómstólar (domstolar.is)
Mál nr. 312/2025. Málið varðaði skaðabótakröfu GS vegna miðlunar stefnda E á persónuupplýsingum um hann til samtakanna G. Í dómi Landsréttar var talið að umrædd miðlun persónuupplýsinga hefði hvorki getað byggst á rétti G til þeirra á grundvelli upplýsingalaga né hefði vinnsla þeirra verið nauðsynleg til að fullnægja…
- Persónuvernd – Úrskurður: Uppflettingar Landspítala og sérfræðilæknis í sjúkraskrá
12. maí 2026 · Úrskurðir Persónuverndar · Persónuvernd (island.is)
Persónuvernd úrskurðaði í máli þar sem kvartað var yfir uppflettingum sérfræðilæknis í sjúkraskrá einstaklings. Málið laut að því hvort uppflettingarnar hefðu verið nauðsynlegar vegna læknisfræðilegrar meðferðar eða ráðgjafar og hver bæri ábyrgð á þeim. Niðurstaða Persónuverndar var að þrjár uppflettingar, sem tengdus…
- Héraðsdómur Reykjavíkur – Friðhelgi einkalífs, Miskabætur, Sönnun (nr. E-3764/2025)
6. maí 2026 · Dómar héraðsdómstóla · Dómstólar (domstolar.is)
Mál nr. E-3764/2025. A höfðaði mál gegn B og C og krafðist miskabóta vegna ætlaðra brota gegn friðhelgi einkalífs. A byggði á því að C og aðrir starfsmenn B hefðu tekið við farsíma hans, brotist inn í hann, afritað gögn úr honum og komið þeim til annarra fjölmiðla. Stefndu kröfðust sýknu. Í dómi héraðsdóms var talið a…
- Reglugerð um upplýsingaskyldu flytjenda, söfnun, vinnslu, miðlun og varðveislu upplýsinga um farþega og áhöfn skv. l. lið 1. mgr. 23. gr. laga um landamæri nr. 136/2022
6. maí 2026 · Samráðsgátt · Samráðsgátt (island.is)
Kynning á nýrri reglugerð um afhendingu og vinnslu farþegaupplýsinga í löggæslutilgangi.
- Persónuvernd – Ársskýrsla Persónuverndar 2025
5. maí 2026 · Fréttir og leiðbeiningar Persónuverndar · Persónuvernd (island.is)
Ársskýrsla Persónuverndar fyrir árið 2025 er komin út. Í ársskýrslunni má meðal annars finna tölfræðilegar upplýsingar og ýmsan fróðleik um hlutverk og starfsemi Persónuverndar, auk formála forstjóra, þar sem farið er yfir helstu verkefni stofnunarinnar á árinu.
- Persónuvernd – Leiðbeiningar um vinnslu persónuupplýsinga við vísindarannsóknir
16. apríl 2026 · Fréttir og leiðbeiningar Persónuverndar · Persónuvernd (island.is)
Á síðasta fundi sínum samþykkti Evrópska persónuverndarráðið (EDPB) leiðbeiningar um vinnslu persónuupplýsinga við vísindarannsóknir.
- Persónuvernd – Sameiginlegar leiðbeiningar í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga 2026
1. apríl 2026 · Fréttir og leiðbeiningar Persónuverndar · Persónuvernd (island.is)
Í tilefni sveitarstjórnarkosninganna sem fram fara 16. maí nk. hafa nokkrar stofnanir tekið höndum saman og gefið út sameiginlegar leiðbeiningar fyrir stjórnmálasamtök, framboð og almenning.
- Persónuvernd – Samræmdar eftirlitsaðgerðir persónuverndarstofnana innan EES
20. mars 2026 · Fréttir og leiðbeiningar Persónuverndar · Persónuvernd (island.is)
- Persónuvernd – Ákvörðun: Afturköllun hluta ákvörðunar Persónuverndar frá 28. nóvember 2023 í máli nr. 2022020414
19. mars 2026 · Ákvarðanir Persónuverndar · Persónuvernd (island.is)
Persónuvernd hefur afturkallað hluta ákvörðunar stofnunarinnar frá 28. nóvember 2023 í máli nr. 2022020414 vegna úttektar á vinnslu persónuupplýsinga með notkun Kópavogsbæjar á skýjalausn Google í grunnskólastarfi. Við töku ákvörðunar leit Persónuvernd til dóms Hæstaréttar frá 9. desember 2024 í máli nr. 18/2024. Pers…
- Persónuvernd – Ákvörðun: Afturköllun hluta ákvörðunar Persónuverndar frá 28. nóvember 2023 í máli nr. 2022020415
19. mars 2026 · Ákvarðanir Persónuverndar · Persónuvernd (island.is)
Persónuvernd hefur afturkallað hluta ákvörðunar stofnunarinnar frá 28. nóvember 2023 í máli nr. 2022020415 vegna úttektar á vinnslu persónuupplýsinga með notkun Hafnarfjarðarbæjar á skýjalausn Google í grunnskólastarfi. Við töku ákvörðunar leit Persónuvernd til dóms Hæstaréttar frá 9. desember 2024 í máli nr. 18/2024.…
- Persónuvernd – Ákvörðun: Afturköllun hluta ákvörðunar Persónuverndar frá 28. nóvember 2023 í máli nr. 2022020416
19. mars 2026 · Ákvarðanir Persónuverndar · Persónuvernd (island.is)
Persónuvernd hefur afturkallað hluta ákvörðunar stofnunarinnar frá 28. nóvember 2023 í máli nr. 2022020416 vegna úttektar á vinnslu persónuupplýsinga með notkun Reykjanesbæjar á skýjalausn Google í grunnskólastarfi. Við töku ákvörðunar leit Persónuvernd til dóms Hæstaréttar frá 9. desember 2024 í máli nr. 18/2024. Per…
- Persónuvernd – Ákvörðun: Afturköllun hluta ákvörðunar Persónuverndar frá 28. nóvember 2023 í máli nr. 2022020418
19. mars 2026 · Ákvarðanir Persónuverndar · Persónuvernd (island.is)
Persónuvernd hefur afturkallað hluta ákvörðunar stofnunarinnar frá 28. nóvember 2023 í máli nr. 2022020418 vegna úttektar á vinnslu persónuupplýsinga með notkun Garðabæjar á skýjalausn Google í grunnskólastarfi. Við töku ákvörðunar leit Persónuvernd til dóms Hæstaréttar frá 9. desember 2024 í máli nr. 18/2024. Persónu…
- Persónuvernd – Ákvörðun: Niðurfelling hluta ákvörðunar Persónuverndar frá 28. nóvember 2023 í máli nr. 2022020363
19. mars 2026 · Ákvarðanir Persónuverndar · Persónuvernd (island.is)
Persónuvernd hefur fellt úr gildi hluta ákvörðunar stofnunarinnar frá 28. nóvember 2023 í máli nr. 2022020363 vegna úttektar á vinnslu persónuupplýsinga með notkun Reykjavíkurborgar á skýjalausn Google í grunnskólastarfi. Við töku ákvörðunar leit Persónuvernd til dóms Hæstaréttar frá 9. desember 2024 í máli nr. 18/202…
- Persónuvernd – Úrskurður: Miðlun lögmannsstofu á ráðningarsamningi og uppsagnarbréfi fyrrverandi starfsmanns til utanaðkomandi lögmanns
17. mars 2026 · Úrskurðir Persónuverndar · Persónuvernd (island.is)
Persónuvernd hefur úrskurðað um að miðlun lögmannsstofu á persónuupplýsingum kvartanda hafi verið í samræmi við persónuverndarlöggjöfina. Í ljósi þess að úrskurðurinn inniheldur upplýsingar um kvartanda, jafnvel þó persónuauðkenni væru afmáð, hefur Persónuvernd ákveðið að birta ekki úrskurðinn í heild sinni. Hins vega…
- Persónuvernd – Úrskurður: Afgreiðsla Landsbankans hf. á aðgangsbeiðni
12. mars 2026 · Úrskurðir Persónuverndar · Persónuvernd (island.is)
Persónuvernd hefur úrskurðað í máli þar sem kvartað var yfir afgreiðslu Landsbankans hf. á aðgangsbeiðni kvartanda, sem hafði óskað eftir afriti af öllum persónuupplýsingum sem bankinn hafði til vinnslu um hana á tilteknu tímabili. Kvartandi taldi að ýmsar persónuupplýsingar hefðu verið undanskildar við afgreiðsluna e…
Vikulegt fréttabréf
Nýjast: Landsréttur staðfestir brot landlæknis í Heilsuveru en lækkar stjórnvaldssekt (Vika 44, 2026). Fréttabréfasafn: Persónuverndarvöktun
Flokkar
- Úrskurðir Persónuverndar
- Ákvarðanir Persónuverndar
- Álit Persónuverndar
- Fréttir og leiðbeiningar Persónuverndar
- Dómar Hæstaréttar
- Dómar Landsréttar
- Dómar héraðsdómstóla
- EFTA-dómstóllinn
- Eftirlitsstofnun EFTA
- Lög og þingmál
- Samráðsgátt
- Reglugerðir og reglur
Heimildir
- Persónuvernd (island.is)
- Dómstólar (domstolar.is)
- EFTA-dómstóllinn (eftacourt.int)
- Eftirlitsstofnun EFTA (eftasurv.int)
- Alþingi – þingmál
- Samráðsgátt (island.is)
- Stjórnarráðið
Önnur réttarsvið á Regluvaktaranum
- Skattvöktun – Dagleg vöktun á íslenskum skattarétti: úrskurðir yfirskattanefndar, dómar, lagafrumvörp, reglugerðir og samráðsmál um skatta og gjöld á einum stað.
- Fjármálaregluvöktun – Dagleg vöktun á fjármálaregluverki: fjármálaeftirlit Seðlabankans, verðbréfaviðskipti, peningaþvætti, lífeyrissjóðir, dómar, lagabreytingar og samráðsmál.
- Orku- og innviðavöktun – Dagleg vöktun á orku- og innviðamálum: Raforkueftirlitið, leyfi Umhverfis- og orkustofnunar, rammaáætlun, umhverfismat, úrskurðir ÚUA, dómar og þingmál.
- Samkeppnisvöktun – Dagleg vöktun á samkeppnisrétti: ákvarðanir og samrunamál Samkeppniseftirlitsins, úrskurðir áfrýjunarnefndar samkeppnismála, dómar, þingmál og samráðsmál.
- Innkaupa- og ríkisaðstoðarvöktun – Dagleg vöktun á opinberum innkaupum og ríkisaðstoð: úrskurðir kærunefndar útboðsmála, ákvarðanir ESA um Ísland, dómar íslenskra dómstóla og EFTA-dómstólsins.
- Félagaréttarvöktun – Dagleg vöktun á félagarétti: dómar um hluthafa, ábyrgð stjórnenda, hlutafé og samruna, úrskurðir um fyrirtækjaskrá og ársreikningaskrá, þingmál og samráðsmál.
- Vinnuréttarvöktun – Dagleg vöktun á vinnurétti: dómar Félagsdóms, úrskurðir kærunefndar jafnréttismála, dómar um ráðningarsamninga og uppsagnir, þingmál og samráðsmál.
Regluvaktarinn – forsíða